|
. Fréttir 30/11.... Það verður byrjað að grafa í Friggjarbrunni í næstu viku. Dalvegur 24-26 er lóð í eigu fyrirtækisins og er nú unnið að breytingu á deiliskipulagi hjá Kópavogsbæ. Þarna er áætlað að reisa 20,000 fm2 verslunar og skrifstofuhúsnæð, ásamt bílageymslu sem yrði cirka 10,000 fm2. Ekki liggur fyrir hvenær framkvæmdir muni hefjast og eru allar eignir á þessum lóðum nú í útleigu. Einnig mun í næstu viku koma ljós með breytingu á deiliskipulagi fyrir Þorrasali, en það er íbúðarblokk sem er á mjög góðum stað í Kópavogi með útsýni yfir gólfklúbbinn GKG. Áætlað er að framkvæmdir í Þorrasölum gætu hafist í mars/apríl. Fleira er ekki í fréttum í bili. Fréttir 20/11.... Tafist hefur að hefja framkvæmdir á Laugaveginum og hefur ÁF-hús verið í viðræðum við þrjár borgarstjórnir. Að einhverjum örsökum hefur þetta tafist í kerfinu hjá Reykjavíkurborg og mun þetta skemma fyrir frekari uppkaupum verktaka á Laugaveginum, því að verktakar geta ekki verið örruggir um það að fá að byggja á þessum byggingareitum innan eðlilegs tíma. Fréttir 19/11 .... Búið er að uppfæra heimasíðu ÁF-húsa ehf, því að nú eru mörg verk að klárast og ný verkefni að fara af stað. Kaupendur eiga að geta skoðað myndir og teikningar á heimasíðunni og prentað út upplýsingar. Ef einhver er með fréttir sem eiga heima á þessari síðu er viðkomandi beðinn að senda tölvupóst á
This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it
Fréttir: 15/11 -16/11: Steyptur voru sökklar í Freyjubrunni 16/11 2007 og voru þetta 75 m3 af steypu. Nú eru hafnar framkvæmdir við Urðarhvarf 10 og er byrjað að grafa þar. Verkefni framundan 2007-2008: Íbúðarhúsnæði: Freyjubrunnur 25-27 8 íbúða lyftuhús með bílageymslu. Sjafnarbrunnur 2: 8 íbúða lyftuhús með bílageymslu. Friggjarbrunnur 3-5: 12 íbúða lyftuhús með bílageymslu. Þorrasalir 9-11: 32 íbúða lyftuhús með bílageymslu. Laugavegur 33-35: 6,000 verslunar og íbúðarhúsnæði. Framkvæmdir hafa tafist vegna skipulagsmála hjá Reykjavíkurborg. Þorrasalir 32 íbúðir Atvinnuhúsnæði: Urðarhvarf 10: 7,000 fermetra atvinnuhúsnæði með bílageymslu. Urðarhvarf 14: 7,000 fermetra atvinnuhúsnæði með bilageymslu. Tilboðsverk: Sundlaug Kópavogs Önnur minni verk
|